Að lesa blogg er góð skemmtun að lesa hotmales bloggið er enþá meiri skemmtun

Ekki síða fyrir viðkvæma

18.07.2008 13:51:15 / Þráinn

Endajaxlar.....

hefur mér einhverntíman langað til að lýta út eins og Arnold Schwarzenegger þá er það sko í dag! fór í gær og lét fjarlægja báða neðri endajaxlana í mér og myndirnar segja meira en þúsund orð....



» 16 hafa sagt sína skoðun

08.06.2008 19:03:00 / Þráinn

Danmörk!

jájá... svo er það... .maður er bara staddur í danmörku.. og sýnist að það sé siður okkar melanna að blogga bara í útlöndum :haha:  eeeen kom á fimmtudaginn og fer á fimmtudaginn..... ég og Ragna erum hjá Palla og Árúnu vinkonu rögnu og förum á þriðjudaginn til köben og förum þaðan heim!..... ætla að reyna að blogga einhvað um ferðina seinna en ætla að halda áfram að drekka danske öl og baða mig í danskri sól þangað til 8) 

kviss bamm búmm

c ya!
þráinn


» 8 hafa sagt sína skoðun

26.03.2008 17:51:29 / Binni

jújú

jæja.. verður maður ekki bara að blogga meira víst maður er nú búinn að fynna þessa síðu aftur....

en allavega ég er kominn aftur heim eftir svíþjóðarferðina... heppnaðist bara djöfull vel.. og svo var bara haldið áframm að djamma þegar maður kom heim að sjálfsögðu.. laugardagskvöldið var nú bara svona frekar rólegt (rúntur, barinn og rúntur)

svo kom sunnudagur... og þá var tekið á því hittumst við nokkur í einu heimahúsi og fengum okkur öl og sátum að spjalli þar til að það kom upp sú hugmynd að kíkja á barinn á klaustri þar sem þar átti að vera lifandi tónlist. við fórum þangað og skemmtum okkur honunglega framm eftir morgni :P

en já ... bara svona henda inn smá línu svo fólk haldi ekki að við séum að þorna upp...


kv. Binni


» 10 hafa sagt sína skoðun

21.03.2008 17:29:11 / Binni

Jæja..

Enn einusinni datt ég inn á síðuna okkar óvart á bloggrúntinum..

Kallinn er staddur í Svíþjóð núna þessa dagana að skoða menninguna og eyða peningum..
En þið þurfið nú ekki að örvænta því ég kem heim á morgun og ligg í þynku alla páskana. Búinn að fatta mikið nýtt um þetta land þar sem varla er hægt að þverfóta fyrir volvo, saab, bjór, heitum píum og SNJÓ hérna í dag og í gær...

Ættlaði að gerast menningarlegur í gær og skellti mér ásamt foreldrunum í miðbæjinn og þar átti að taka myndir og eyða peningum eins og venjulegum túristum sæmir. Nei nei þurfti ekki að fara að mökk snjóa svo við þurftum aðeins að kíkja á helstu staði eins og eitthvað kaffihús og vegas sem er held ég bara annað besta öldurhús miðbæjarinns (Deevas á vinninginn) svo ákvað ég að gera tilraun til að fá sól, fór inn í gleraugnabúð og rölti þaðan út með Ray bahn sólgleraugu í poka... Þetta virkaði því sólin fór að skína (þótt það hafi kannski kostað sitt)... Svo var kvöldinu eytt í rólegheit eins og keilu og vöfluboð (já og maður getur vaknað þunnur eftir það) MAGNAÐ...

En já.... þá held ég að ég sé búinn að blogga allavega fyrir þetta ár...


Hafið það sem allra best..

Binni
-nigplz-

» 8 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 19:06:07 / Þráinn

SNJÓR!

Er hækkar á lofti sólin, þá loksins kemur snjórinn,

við fögnum með með stökkvi og spól,

meiri snjó meiri snjó meiri snjó

 

já hvað haldiðið, bara loksins kominn snjór í vík, og bara hið fínasta sleðafæri.

ég stalst aðeins á sveitasleðann í dag, og prufaði stökkpallinn sem ég bjó til með snjóbílnum á þriðjudagskvöldið, stökkið var fínt, en mætti hafa betri lendingu :lol:

 Gamli XLT sleðinn er sprækari enn aldrei fyrr, hann er farinn að láta eins og maður og fara í gang þegar maður biður um það (sjö níu þrettán!) en er hálf lúinn og gamall greyjið, enda á ekki roð í nýju sleðanna (líka orðinn 13 ára gamall)

 

Karen kemur til víkur á morgunn, og ætla ég að henda henni aftan á sleðann hjá mér og bruna með hana nokkra hringi, þótt að henni lýtist ekkert á það veit ég... en það er ekki eins og að hún komist upp með neitt annað :klikk: . síðan er kemur Ragna til víkur á laugardaginn, aðeins að kíkja á snjóinn, og hún kemur einnig með iPod Nano, sem að hún keypti í fríhöfninni handa mér :P búinn að ætla að  kaupa svona, og lét loksins verða að því.

 Hmm... skrifa einhvað meira???? :S

 

ha jú! fórum í smá fjallaferð á þriðjudagskvöldið, skruppum inn á heiðar á 4 bílum, Ingvar á höfðabrekku og Gummi vignir, Andrés í Kerlingadal, Granni, og Ég, þormar og einar á Bjsv. tacomunni, það var verið að prufa hana í fyrsta skiptið í snjó að viti, og kom bara sæmilega út, fyrir utan að hún komst ekki í lága drifið sökum rafmagnvesens, það þarf bara að kippa því í lag.

 snjósleði

nenni ekki að setja meira inn í bili...

 adios

þráinn 


» 9 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 03:11:31 / Þráinn

jólasnjór

Núna langar hotmales í einhvað af snjó til að geta haldið áfram að stunda einhverja helvítis vitleysu!!!

 http://www.kvikmynd.is/video.asp?land=&offset=0&id=2080

 


» 7 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 00:35:03 / Þráinn

nýtt spjall

það kemur í ljós hvernig fólk á að fíla þetta, þetta spjall hefur bæði kosti og galla.. s.s. að maður þarf að skrá sig inn á spjallið til að geta skrifað comment á þræðina (á blogginu er nóg að skrifa bara nafn og staðfestingarkóða) en kosturinn er að það er mun auðveldara fyrir notendur að senda inn myndir og linka og MUUUUN fljótlegra heldur en á blog.centra.is.

 

síðan kemur bara í ljós hvernig fólk á eftir að taka því að þetta sé hólfað svona niður, kemur ekki beint upp á skjáinn eins og á blog.central.is, en ég býst ekki við neinu svaka spjalli... kannski bara örfáar hræður að bulla um ekki neitt... en sá sem fer í einvherja svaka fílu yfir þessu getur bara sogið feitan dverg mín vegna og klagað í dóra, en ég held að hann ætli að keyra bæði bloggið og spjallið samtímis allavega fyrst um sinn

 http://4x3aflugi.forumcircle.com/

þráinn out


» 6 hafa sagt sína skoðun

18.12.2007 18:45:27 / Þráinn

Veikindi

Jæja... núna er maður loksins að skána úr þessu helvíti, fékk þetta á laugardaginn og lá um kvöldið og daginn eftir og framm á næsta kvöld að skila öllu sem ég gat skilað og vá 8| magnað hvað það getur verið mikið miðað við að maður borðar ekki neitt... á þessum 3 dögum tókst mér að léttast um 5Kg 8| enda lýt ég alveg hrikalega illa út, mætti segja að ég lýti út eins og ég myndi vera þrítugur og hef reykt alla ævi :lol:

 ég hafði að skrölta í vinnuna eftir hádegi í dag, en hékk ekki þar nema í tvo tíma og náði að draga mig upp í bíl upp í rúm aftur, og fór bara að sofa... vaknaði hress aftur og var að borða fyrstu heilu máltíðina mína (síðan á föstudagskvöldið;).

 

en ég og binni erum oft að velta því fyrir okkur hverjir eru að skoða þetta bull í okkur :S

yfirleitt margir búnnir að skoða á degi hverjum og maður fær þá alltaf bakþannka yfir því að vera ekki búinn að blogga neitt síðustu mánuði jafnvel!... eeeen við erum að skána aftur held ég..

endilega merkið við ykkur í gestabókina hjá okkur.... hún er líka svo sjaldan notuð að það er hægt að lesa ættfræðirit frá sturlungaöld með tveimur skrollum á músinni :lol:

 

takk takk

þráinn 


» 9 hafa sagt sína skoðun

16.12.2007 19:33:52 / Binni

Nýr burri!

Djöfullsins svaka græju var ég að versla núna 8)

Daihatsu Feroza
árgerð 1991
ekinn 85 þús (eða 185) eða 285)) hver veit? mælarnir´í þeim fara ekki upp fyrir 100 þús
Get tekið toppinn af 8)
torfærast í 4wd og driftað á rwd 8)

fékk hann á flotta verðinu.





mikil græja 8)

» 12 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 18:38:40 / Þráinn

bændur...

Hvað er málið með bændur nú til dags???

kvarta undan erfiðri vinnu og lárra tekna  og nenna svo ekki einu sinni að rýja rollurnar sínar sjálfir... þurfa að fá einhverja sérfræðinga að sunnan (já allaleið frá nýjasjálandi) til að klippa þessar örfáu hræður sem þeir hafa undir húsþakinul..

 kv. þráinn sem er að hugsa um að gerast latur bóndi... :S


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.12.2007 20:20:48 / Binni

verð ég ekki að blogga líka?

jú það held ég..

byrja á bílamálunum líka.. það er nú samt frekar lítil hreifing á þeim hjá mér.. nema nú er Bmwinn til sölu.. 1,530 þús ásett ef þið vitið um einhvern sem vantar bíl. En allavega ástæða sölunar er að mig langar of mikið í jeppa núna eftir að helmingurinn af vinunum er kominn á jeppa og það er farið að snjóa...

en já ég er kominn í jólafrí og búinn að vera í því síðan á fimmtudaginn. Þannig að ég er bara farinn að taka einhverjar vaktir í íþróttamiðstöðini og bara svona að hanga og gera ekki neitt svona þess á milli.

 Ég náði öllum lotunum á þessari önn og vonandi íþróttum.. (fallinn í íslensku eina ferðina enn) en ættla að prufa að taka hana í kvöldskóla á næstu önn.


En allavega...
Er þetta ekki komið gott í bili?
það held ég


Binni er úti


» 10 hafa sagt sína skoðun

26.11.2007 22:45:36 / Þráinn

bogg

er ekki kominn tími til að hrista aðeins upp í þessari síðu??

 

veit ekki hvar ég á að byrja það er svo langt síðan ég bloggaði seinast :S

 ef við byrjum bara á bílamálum, þá er ég búinn að kaupa spoiler og húddskóp á Lettan og stuðara og sílsakitt á Talon og Lettinn fékk grænan í skoðum :(  vola, reyndi að hafa þetta stutt núna ;)

 

en það eru ekki fréttir að herma nema að kallinn er kominn í Slökkviliðið 8|  búinn að vígja mann inn í hana með pompi og pragt (góðu filleríi sem sagt ;)  ) fórum í klippu æfingu síðasta miðvikudag og rifum í sundur tvö bílflök með nýju klippunum.

sem nýliði í björgunnarsveitinni var ég settur í það að breyta aðeins nýja tækjabílnum með því að setja búr aftast í hann til að loka af afturdyrnar svo að hægt sé einungins að ganga að nýju ofur klippunum utanfrá

 

Karen kom um helgina, sem reyndist vera í rólegri kanntinum því ekkert var að gerast um helgina þannig séð... ég gunnar og ívar vorum bara einhvað að drekka heima hjá mér og fórum síðan í party til binna á laugardaginn ásamt fullt af fullu fólki ;) bara gaman einnig fórum við að skjóta um helgina niðrí þórisholti, konurnar okkar ívars voru ekki mjög svo skotglaðar en fengust til að taka í gikkinn nokkrum sinnum, og best fanst þeim að skjóta af skammbyssunni, þar sem hún var svo létt :lol:

 

jæja.. nenni ekki að gera meira í bili

 

Adios Þráinn 


» 10 hafa sagt sína skoðun

17.07.2007 19:42:59 / Binni

Ath nýtt orð...

jæja nú er kominn tími á að eyða einu gömlu lame orði út úr orðabók okkar íslendinga.. og það er orðið læknir... hvernig í fjandanum datt fólki þetta orð til hugar? þegar það gat komið með eitthvað smekklegt orð í staðin... eins og.... td... Heilsufarsfræðingur 8) töff orð ekki satt?

ekki spyrja mig af hverju en þetta orð datt mér í hug þegar ég vakknaði á sunnudagsmorguninn...

svo er hægt að telja upp orð sem fylgja þessu orði eftir breytingu...

Geðheilsufarsfræðingur
Tannheilsufarsfræðingur
Háls, nef og eyrna heilsufarsfræðingur
Heilsufarsfræðingssloppur
Heilsufarsfræðingsdóp

Lækknir hvað?

Hver ræður hvaða orð koma í næstu orðabók?


bara svona smá pæling...

kv. Binni

» 11 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 9
Klukkan